Húsabætur á sveitabæjum. Uppdrættir og áætlanir eptir *Jón Sveinsson*, trjesmið Landskjálftasamskotanefndin í Reykjavík (frá 1896) hefir prenta látið Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja 1898. * * * * * Sýnilega ber tíminn það með sjer, að menn láta sjer almennt mestu varða að bæta hýbýli sín; þeir sjá orðið og sýna, að ekki verður bætt úr því tjóni, sem torfbæirnir hafa í för með sjer, með neinu öðru en velgerðum og hentugum timburhúsum, að þau borga sig hlutfallslega innan skamms, og að vert sje að klífa til þess þrítugan hamarinn. Tilgangurinn með uppdráttum þessum og áætlunum er því sá, að þeim, sem vilja koma sjer upp timburhúsum í stað torfbæja, gefist kostur á nokkrum leiðbeiningum, sem gæti orðið þeim til stuðnings að ýmsu leyti, svo sem til sparnaðar, betri hagnýtingar á efni og rúmi, og að því er snertir ýmislegt fyrirkomulag og þægindi á húsinu við afnot þess, til traustleika og skjóls o.s.frv. Að helztu menn í hreppi hverjum kynni sjer sem bezt uppdrætti þessa og áætlanir, er eigi einungis þeim sjálfum gott, heldur áríðandi fyrir hreppinn, þar sem þeir munu bæði skilja bezt, hver not geta að þeim orðið, og þeir eru leiðtogar og hvatamenn sveitunga sinna. Uppdrættir og áætlanir eru: af húsi A, B, C, D, E og F, og af baðstofuhúsi nr. 1, nr. 2 og nr. 3. Aptan við hverja áætlun eru ýmsar athuganir, og bent á ýms áríðandi atriði viðvíkjandi uppdrættinum næst á undan, og er mjög áríðandi, að menn gjöri sjer ljósa grein fyrir þeim afbrigðum, sem talað er um að gjöra megi frá sjálfum uppdráttunum. * * * * * *Húsið A* 6×8 álnir. * * * * * _Máttarviðir._ kr. a. 2 trje í aurslár (fótstykki) 16 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 4 48 10 trje í gólfslár og bita 12 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 16 80 4 trje í sillur og »lausholt« 16 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 6 40 8 trje í grindina 12 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 9 60 2 trje í grindina 13 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 2 60 20 trje í stafi og sperrur 9 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 18 00 8 trje í skástoðir 10 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 8 00 _Plankar._ 6 battingsplankar 12 feta 2×4 þml., fetið á 5 aura 3 60 8 battingsplankar í gluggakistur 14 feta 2×5 þml., fetið á 6 aura 6 72 _Borðviður._ 9 tylftir af plægðum borðum, óhefl. 14 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 10,00 90 00 5 tylftir af plægðum borðum, óhefl. 12 feta 5/4×5 þml., tylftin á kr. 8,57 42 85 14 tylftir af sænskum þilborðum 14 feta ¾×4 þml., tylftin á kr. 6,00 84 00 3 tylftir af málsborðum 12 feta 5/4×7 þml., tylftin á kr. 9,00 27 00 3 tylftir af málsborðum 14 feta 1×7 þml., tylftin á kr. 9,00 27 00 4 tylftir af strik. og plægð. þilborðum 14 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 11,00 44 00 4 tylftir af gólfborðum 16 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 12,00 48 00 1 tylft af gólflistum (Fodpanel) á 6 kr., 1 tylft af dyra og gluggalistum (gerikt) á 6 kr. 12 00 _Pappi og fleira._ 335 {~WHITE SQUARE~} álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 26 80 Naglar: 3 þús. 4 þml. á 2,30; 2 þús. 3 þml. á 1,20; 6 þús. 2 þml. á 0,65; 1 þús. 1-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1 þml. á 0,25; 1 þús. 2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 5 þús. af pappasaum á 0,25 16 15 12 rúður 14×14 þml. á 0,30 og 12 ruður 12×12 þml. á 0,25 6 60 5 pd. kítti á 0,18; 2 stofuskrár á 1,50; 3 klefaskrár á 0,65; 2 klinkur á 1,50 8 85 4 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 1 60 10 pd. zinkhvíta á 0,28 2 80 1 pd. svartur farfi á 0,35; 2 pd. rauður farfi á 0,35 1 05 10 pottar fernisolía á 0,70 7 00 Reykháfur 9 áln. á 5,50=49,50. Eða 550 danskir múrsteinar á 5 a. 27,50; kalk 12,00; vinnulaun 10,00 49 50 Þakjárn: 40 plötur 6 feta á 1,50; 38 plötur 7 feta á 1,75 126 50 Þakjárnsnaglar 800 á 70 a. hdr., og blýhringir á 2 kr. 7 60 1000 galvaníser. 1-½ þml. naglar 1 75 Hurðarhjörur: 6 pör á 40 a., 1 par (ytri) á 65 a., 1 gross skrúfur 80 a. 3 85 1 eldavjel með 3 pottstæðum og vatnskatli 26 00 1 hitavjel með 1 pottstæði, ferstrend, á 4 fötum 10 00 4 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 2 72 6 áln. beinar reykpípur á 1,30 alinin 7 80 2 reykhurðir á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20 3 90 Smíðakaup 170 00 ______ 931 52 Kjallari undir eldhúsi og búri (eða öllu húsinu) 2 áln. 6 þml. neðanjarðar, 18 þml. ofanjarðar, eins og grunnurinn segir til. Aurslár, gólfslár og bitar með 5×5 þml. gildleika; allir aðrir viðir í grindinni 4×4 þml., nema 2×4 þml. í skúrinn, þó 4×4 þml. í undirgrindinni i skúrnum. Undir lopt niðri 3-½ alin (undir bita), stafir 9 fet á hæð og sperruleggir sömul. 9 fet. Öll milliþil í húsinu einföld, úr 5/4 þml. borðum, strikuðum og plægðum. Þrjár óstrikaðar spjaldahurðir: 1 niðri, 2 uppi. Frá hitavjelinni í stofunni má leggja reykpípu (járnpípu) upp um loptið, til þess að veita hita í efra herbergið, og láta hana liggja inn i reykháfinn 8 þml. frá þaki. Upp í grindina milli þilja skal troðið fornu heyi, en óskemmdu þó og vel þurru, eða þá vel þurrum reiðing og moldarlausum. Utan á grindina skulu lögð 5/4 þml. borð, þurr og plægð, en óhefluð, og pappi þar utan yfir, næst járninu. Innan á grindina skal einnig leggja pappa og þilja síðan innan með strikuðum þilborðum, {~VULGAR FRACTION FIVE EIGHTHS~} eða ¾ þml. á þykkt. Sami borðviður í þak (undir járnið) og veggi. Leggja skal vel þurrt og moldarlaust torf milli sperra, festa því þar með þverlistum, er klemmt sje milli sperrukjálkanna, og mega þeir (listarnir) ekki standa inn af sperrunum. Þá skal negla pappa innan á sperrurnar og þilja síðan innan með plægðum þilborðum. Tvö aðalherbergin skulu máluð og gluggar allir þrímálaðir utan og innan. Hin herbergin ferníseruð tvívegis, nema geymsluherbergi. Í heilu gluggunum 14×14 þml. rúður, en hinum 12×12 þml. Allt járnið nr. 24. Hafa má auðvitað skúr við báðar hliðar hússins að endilöngu. Þá breytist auðvitað áætlunin nokkuð. Og þá verður að færa búrgluggann á eldhússtafninn. Þá verður allt loptið uppi ein baðstofa. Stiginn má vera þar sem hann er á myndinni, en reykháfinn verður að færa út í aðra hliðina, eins og sýnt er á _baðstofuhúsinu nr. 1._ * * * * * *Húsið B.* 7×9 álnir. * * * * * _Máttarviðir._ kr. a. 2 trje í aurslár (fótstykki) 18 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 5 04 10 trje í gólfslár og bita 14 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 19 60 3 trje í sillur og »lausholt« 18 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 7 20 8 trje í grindina 14 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 11 20 2 trje í grindina 15 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 3 00 20 trje í stafi og sperrur 10 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 20 00 8 trje í skástoðir 11 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 8 80 _Plankar._ 6 battingsplankar 14 feta 2×4 þml., fetið á 5 aura 4 20 9 plankar í gluggakistur 14 feta 2×5 þml. fetið á 6 aura 7 56 _Borðviður._ 18 tylftir af plægðum borðum, óhefl., 12 feta 5/4×5 þml., tylftin á kr. 8,57 154 26 21 tylft af sænskum þilborðum 12 feta ¾×4 þml., tylftin á kr. 5,00 105 00 4 tylftir af málsborðum 14 feta 5/4×7 þml., tylftin á kr. 9,00 36 00 3-½ tylft af málsborðum 14 feta 1×7 þml., tylftin á kr. 8,00 28 00 5 tylftir af strik. og plægð. þilborðum 14 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 11,00 55 00 8 tylftir af gólfborðum 12 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 8,25 66 00 1 tylft af gólflistum (Fodpanel) á 6 kr., 1 tylft af dyra- og gluggalistum (gerikt) á 6 kr. 12 00 _Pappi og fleira._ 420 {~WHITE SQUARE~} álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 33 60 Naglar: 4 þús. 4 þml. á 2,30; 2 þús. 3 þml. á 1,20; 7 þús. 2 þml. á 0,65; 1 þús. l-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1 þml. á 0,25; 4 þús. 2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 5 þús. af pappasaum á 0,25 23 10 18 rúður 14×14 þml. á 0,30 og 14 rúður 12×12 þml. á 0,25 8 90 5 pd. kítti á 0,18; 2 stofuskrár á 1,50; 3 klefaskrár á 0,65; 3 klinkur á 1,50 10 35 3 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 1 20 10 pd. zinkhvíta á 0,28 2 80 1 pd. svartur farfi á O,35; 2 pd. rauður farfi á 0,35 1 05 15 pottar fernisolía á 0,70 10 50 Reykháfur: 9 áln. á 5,50=49,50. Eða 550 danskir múrsteinar á 5 a. 27,50; kalk 12,00; vinnulaun 10,00 49 50 Þakjárn: 90 plötur 7 feta á 1,75 157 50 Þakjárnsnaglar 950 á 70 a. hdr., og blýhringir á kr. 2,25 8 90 1000 galvaníser. 1-½ þml. naglar 1 75 Hurðarhjörur: 6 pör á 40 a., 2 pör (ytri) á 65 a, 1 gross skrúfur 80 a. 4 50 1 eldavjel með 3 pottstæðum og vatnskatli 26 00 1 hitavjel með 1 pottstæði, ferstrend, á 4 fótum 10 00 4 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 2 72 6 áln. beinar reykpípur á 1,30 alinin 7 80 2 reykhurðir á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20 3 90 Smíðakaup 220 00 _______ 1126 93 Sömu aths. eiga við um þetta hús og húsið A, nema hvað stafir og sperrur verða að sínu leyti lengri--3 áln. 16 þml. undir bita í húsinu B. Herbergjaskipunin í þessu húsi sama og í húsi A, en herbergin öll stærri og 2 gluggar á stofunni. Hafa má stofuna niðri styttri, ef vill, og leggja til lengdarinnar á búri og eldhúsi á báðum húsunum (A og B). Hafa má loptið uppi óhólfað sundur, í baðstofu stað, en færa þá reykháf og búrglugga eins og á A; hafa svo geymsluskúra við báðar hliðar hússins eptir endilöngu. Úr gangi þeim, sem gengið er inn í gegn um skúr til eldhúss, geta einnig verið dyr til stofu. Skúrinn þeim mun lengri. Sje loptið einungis notað fyrir baðstofu (óhólfað sundur), verður áætlunin nálægt 40 kr. lægri, og hafa þá 1 heilan glugga á stafni, í stað tveggja hálfra (á myndinni). Þilja fyrir uppganginn alla leið upp undir þak, með hurð á, sem fellur inn í baðstofuna. * * * * * *Húsið C* 9×10 álnir. * * * * * _Máttarviðir._ kr. a. 2 trje í aurslár (fótstykki) 20 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 5 60 12 trje í gólfslár og bita 18 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 30 24 4 trje í sillur og »lausholt« 20 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 8 00 2 trje í sama 19 feta 4×4 þml., fetið á 10 a. 3 80 10 trje í grindina 16 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 16 00 6 trje í grindina 11 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 6 60 19 trje í stafi og sperrur 10 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 19 00 12 trje í skástoðir 12 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 16 80 _Plankar._ 8 pl. 14 feta 2×4 þml., fetið á 5 aura 5 60 8 pl. 16 feta 2×5 þml., fetið á 6 aura 7 68 _Borðviður._ 21 tylft af plægðum borðum, óhefl., 12 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 8,25 173 25 26 tylftir af sænskum þilborðum 11 feta {~VULGAR FRACTION FIVE EIGHTHS~}×4 þml., tylftin á kr. 4,59 119 34 5 tylftir af málsborðum 14 feta 5/4×7 þml., tylftin á kr. 9,00 45 00 5 tylftir af málsborðum 14 feta 1×7 þml., tylftin á kr. 8,00 40 00 12 tylftir af strik. og plægð. þilborðum 8 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 6,28 75 36 15 tylftir af gólfborðum 10 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 6,88 103 20 2 tylftir af gólflistum (Fodpanel) 12 feta á 6 kr., 2 tylftir af dyra- og gluggalistum (gerikt) 12 feta á 6 kr. 24 00 _Pappi og fleira._ 500 {~WHITE SQUARE~} álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 40 00 Naglar: 5 þús. 4 þml. á 2,30; 3 þús. 3 þml. á 1,20; 8 þús. 2 þml. á 0,65; 2 þús. 1-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1 þml. á 0,25; 5 þús. 2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 6 þús. af pappasaum á 0,25 27 50 54 rúður 14×15 þml. á 0,30 16 20 8 pd. kítti á 0,18; 8 stofuskrár á 1,50; 3 klefaskrár á 0,65; 2 klinkur á 1,50 18 39 7 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 2 80 10 pd. zinkhvíta á 0,28 2 80 2 pd. svartur farfi á 0,35; 3 pd. rauður farfi á 0,35 1 75 25 pottar fernisolía á 0,70 17 50 Reykháfur: 560 danskir múrsteinar á 5 a. 28,00; kalk 12,00; vinnulaun 10,00 50 00 Þakjárn: 23 plötur 6 feta á 1,50, 68 plötur 7 feta á 1,75, 45 plötur 8 feta á 2,00 243 50 Þakjárnsnaglar 1450 á 70 a. hdr., og blýhringir á kr. 2,25 12 40 1000 galvaníser. 1-½ þml. naglar 1 75 Hurðarhjörur: 12 pör á 40 a., 1 par (ytri) á 65 a., 1 gross skrúfur 80 a. 6 25 1 eldavjel með 3 pottstæðum og vatnskatli 26 00 1 hitavjel með 1 pottstæði, ferstrend, á 4 fótum 10 00 4 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 2 72 6 áln. beinar reykpípur á 1,30 alinin 7 80 2 reykhurðir á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20 3 90 Smíðakaup 325 00 _______ 1515 73 Sama um þetta hús að segja að öðru leyti og húsið A. Einfalt lopt, allir milliveggir einfaldir, stofan niðri sje máluð og forstofan. Allir gluggar þrímálaðir. Hin herbergin ferníseruð. Undir bita 3 áln. 16 þml. Í áætluninni er gjört ráð fyrir að hita sje veitt úr herberginu niðri upp um loptið upp í baðstofu með beinu járnpípunum. Vilji menn hafa geymsluskúra fyrir báðum endum hússins, eins og það er breitt til, verður að hafa forstofudyrnar á hlið hússins (hinum megin hornsins, við það sem þær nú eru). * * * * * *Húsið D.* 10×10-½ alin. * * * * * _Máttarviðir._ kr. a. 2 trje í aurslár (fótstykki) 21 fet 5×5 þml., fetið á 14 aura 5 84 12 trje í gólfslár og bita 20 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 33 60 2 trje í sillur og »lausholt« 21 fet 4×4-½ þml., fetið á 12 aura 5 04 4 trje í sama 21 fets 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 10 08 12 trje í grindina 14 feta 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 20 16 6 trje í grindina 12 feta 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 8 64 21 trje í stafi og sperrur 11 feta 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 27 72 17 trje í skástoðir 16 feta 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 32 64 _Plankar._ 8 plankar 14 feta 2×4 þml., fetið á 5 aura 5 60 10 plankar 15 feta 2×7 þml., fetið á 10 aura 15 00 _Borðviður._ 18 tylftir af plægðum borðum, óhefl., 10 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 6,88 130 72 11 tylftir af samskonar borðum 11 feta á 7,57 83 27 40 tylftir af sænskum þilborðum 11 feta {~VULGAR FRACTION FIVE EIGHTHS~}×4 þml., tylftin á kr. 4,59 183 60 4 tylftir af samskonar borðum 12 feta 5,00 20 00 7 tylftir af málsborðum 14 feta 5/4×7 þml., tylftin á kr. 9,00 63 00 7 tylftir af málsborðum 14 feta 1×7 þml., tylftin á kr. 8,00 56 00 13 tylftir af strik. og plægð. þilborðum 8 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 6,28 81 64 6 tylftir af gólfborðum 10 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 6,88 41 28 8 tylftir af samskonar borðum á 7,65 61 20 2 tylftir af gólflistum (Fodpanel) 12 feta á 6 kr., 2 tylftir af dyra og gluggalistum (gerikt) á 6 kr 24 00 _Pappi og fleira._ 640 {~WHITE SQUARE~} álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 51 20 Naglar: 4 þús. 4 þml. á 2,30; 3 þús. 3 þml. á 1,20; 9 þús. 2 þml. á 0,65; 2 þús. 1-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1 þml. á 0,25; 5 þús. 2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 7 þús. af pappasaum á 0,25 26 10 54 rúður 14×15 þml. á 0,30 16 20 8 pd. kítti á 0,18; 7 stofuskrár á 1,50; 3 klefaskrár á 0,65; 2 klinkur á 1,50 15 89 7 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 2 80 10 pd. zinkhvíta á 0,28 2 80 2 pd. svartur farfi á 0,35; 3 pd. rauður farfi á 0,35 1 75 25 pottar fernisolía á 0,70 17 50 Reykháfur: 570 danskir múrsteinar á 5 a. 28,50; kalk 12,00; vinnulaun 10,00 50 50 Þakjárn: 71 plata 8 feta á 2,00; 40 pl. 7 f. á 1,75; 44 pl. 6 feta á 1,50 278 00 Þakjárnsnaglar 1550 á 70 a. hdr., og blýhringir á kr. 2,75 13 60 1000 galvaníser. 1-½ þml. naglar 1 75 Hurðarhjörur: 11 pör á 40 a., 1 par (ytri) á 65 a., 1 gross skrúfur 80 a. 5 85 1 eldavjel með 3 pottstæðum og vatnskatli 30 00 1 hitavjel með 1 pottstæði, sívöl, á 4 fótum 10 00 4 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 2 72 6 áln. beinar reykpípur á 1,30 alinin 7 80 2 reykhurðir á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20 3 90 Smíðakaup 340 00 _______ 1787 39 _Aths._ Þilið milli stofu og eldhúss tvöfalt. Stofa og forstofa með þiljulopti, og hið eina, sem málað verður; hitt ferníserað. Skúr 2-½×3-½ al. Hita veitt frá stofu til kvennaherbergisins. Með fram annari hlið hússins má hafa geymsluskúr. Þilið milli vinnuhjúa (karla og kvenna) má nema burt, ef vill, og hafa þar baðstofu yfir um þvert húsið, líkt og á húsinu C, og dyr til baðstofu gegnt stiganum. Vilji menn halda milliþilinu, en þó spara ljós, má hafa op á þilinu fyrir lampa, er lýsir bæði herbergin í senn. Sjá að öðru leyti aths. við húsið A. * * * * * *Húsið E.* 10×11-½ alin. * * * * * _Máttarviðir._ kr. a. 2 trje i aurslár (fótstykki) 23 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 6 44 14 trje í gólfslár og bita 20 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 39 20 4 trje í sillur og »lausholt« 23 feta 4×4-½ þml., fetið á 12 aura 11 04 2 trje í sama 21 fets 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 5 04 14 trje í grindina 14 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 19 60 7 trje í grindina 10 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 7 00 21 trje í stafi og sperrur 11 feta 4-½×4-½ þml., og 7 trje 12 feta 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 40 44 16 trje í skástoðir 16 feta 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 25 60 2 trje 23 feta, 2 trje 19 feta og 4 trje 18 feta 4×4 þml., fetið á 10 a. 15 60 _Plankar._ 8 plankar 14 feta 2×4 þml., fetið á 5 aura 5 60 10 plankar 15 feta 2×7 þml., fetid á 10 aura 15 00 _Borðviður._ 19 tylftir af plægðum borðum, óhefl., 12 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 8,25 156 75 11 tylftir af samskonar borðum 11 feta á 7,57 83 27 46 tylftir af sænskum þilborðum 11 feta {~VULGAR FRACTION FIVE EIGHTHS~}×4 þml., tylftin á kr. 4,59 211 14 13 tylftir af samskonar borðum 8 feta á 3,35 43 55 7 tylftir af samskonar borðum 12 feta 5,00 35 00 7 tylftir af málsborðum 14 feta 5/4×7 þml., tylftin á kr. 9,00 63 00 7 tylftir af málsborðum 14 feta 1×7 þml., tylftin á kr. 8,00 56 00 12 tylftir af strik. og plægð. þilborðum 8 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 6,28 75 36 8 tylftir af gólfborðum 12 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 8,25 66 00 6 tylftir af samskonar borðum 11 feta á 7,65 45 90 2-½ tylft af gólflistum (Fodpanel) 12 feta á 6 kr., 2-½ tylft af dyra- og gluggalistum (gerikt) á 6 kr. 30 00 _Pappi og fleira._ 680 {~WHITE SQUARE~} álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 54 40 Naglar: 6 þús. 4 þml. á 2,30; 3 þús. 3 þml. á 1,20; 10 þús. 2 þml. á 0,65; 2 þús. 1-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1 þml. á 0,25; 5 þús. 2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 8 þús. af pappasaum á 0,25 31 60 66 rúður 14×15 þml. á 0,30 19 80 10 pd. kítti á 0,18; 13 stofuskrár á 1,50; 2 klefaskrár á 0,65; 2 klinkur á 1,50 25 60 8 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 3 20 20 pd. zinkhvíta á 0,28 5 60 4 pd. svartur farfi á 0,35; 5 pd. rauður farfi á 0,35 3 15 40 pottar fernisolía á 0,70 28 00 Reykháfur: 600 danskir múrsteinar á 5 a. 30,00; kalk og vinnulaun 25,00 55 00 Þakjárn: 73 plötur 8 feta á 2,00; 42 pl. 7 f. á. 1,75; 46 pl. 6 feta á 1,50 288 50 Þakjárnsnaglar 1650 á 70 a. hdr., og blýhringir á kr. 3,00 14 55 1000 galvaníser. 1-½ þml. naglar 1 75 Hurðarhjörur: 15 pör á 40 a., 1 par (ytri) á 65 a., 2 gross skrúfur 80 a. 8 25 1 eldavjel með 3 pottstæðum og vatnskatli 30 00 1 hitavjel með 1 pottstæði, sívöl, á 4 fótum 10 00 2 hitavjelar á 15,00 30 00 10 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 6 80 10 áln. beinar reykpípur á 1,30 alinin 13 00 1 reykhurð á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20; 1 þakgluggi á 6,00 8 75 Smíðakaup 450 00 _______ 2144 48 Báðar stofurnar, forstofa og skrifstofa með þiljulopti; tvöfalt þil eptir miðju húsi endilöngu og þvers um milli stofu og eldhúss. Grind í milliveggjum, sperrur og skammbitar úr 4×4 þml. trjám, annarsstaðar úr 4-½×4-½ þml.; bitar og gólfslár úr 5×5 þml. trjám. Mála þarf forstofu, skrifstofu og báðar stofurnar niðri. Annað ferníserað. Einn þakgluggi, sem lýsa á geymsluherbergið, ef vill; annars rúða á þili yfir stiganum. Til þess að fá geymsluskúr með allri norðurhlið hússins (E), verður að hafa þá glugga, sem eru á stofunni (til sömu hliðar og eldhúsið) á stafni hússins (hægra megin, er gengið er inn í forstofuna), og veit þá sá stafn í austur. Taka má skúr þann í burt, sem er á uppdrættinum, og hafa innganginn til eldhúss í vesturenda skúrsins og þá þegar á hægri hönd inn í eldhúsið. Fellur þá hurðin inn í eldhúsið á sama stað og hún nú er, en til hægri: en stiginn er til vinstri handar. * * * * * *Húsið F.* 11×12-½ alin. * * * * * _Máttarviðir._ kr. a. 2 trje 25 feta 5×5 þml. og 16 trje 22 f. 5×5 þ. á 0.14 56 28 6 trje 25 feta 4-½×4-½ þuml. og 2 trje 23 feta 4-½×-4-½ þuml á 12 a. 23 52 4 trje 22 f. 4-½×4-½ þuml. og 3 trje 20 feta 4-½×4-½ þuml. á 12 a. 17 76 24 trje 11 feta 4-½×4-½ þuml. og 6 trje 12 feta 4-½×4-½ þuml. á 12 a. 40 32 7 trje 13 feta 4×4 þml. og 14 trje 16 feta 4×4 þml. á 10 a. 31 50 9 trje 8 feta 4×4 þml. og 4 trje 10 feta 4×4 þuml. á 10 a. 11 20 2 trje 14 feta 4×4 þuml. á 10 a. 2 80 _Plankar._ 8 pl. 14 f. 2×4 þuml. á 5 a., og 13 pl. 15 f. 2×7 þ á 10 a. 25 10 _Borðviður._ 11 tylftir 11 f. 6×5/4 þml., plægð, óhefl., á 7 57 83 27 11 ------- 12 f. 6×5/4 --- ----- ----- - 8 25 90 75 12 ------- 13 f. 6×5/4 --- ----- ----- - 8 95 107 40 23 ------- 12 f. sænsk þiljuborð 4×{~VULGAR FRACTION FIVE EIGHTHS~} þml. 5 00 115 00 30 ------- 11 f. ----- --------- 4×{~VULGAR FRACTION FIVE EIGHTHS~} þml. 4 59 137 70 13 ------- 8 f. ----- --------- á 3 35 43 55 7 ------- 12 f. ----- --------- - 5 00 35 00 15 ------- 8 f. plægð milliþils borð 6×5/4 þml. á 6 28 94 20 8 ------- óunnin borð 14 f. 7×5/4 þml. á 9 00 72 00 8 ------- ------ 14 f. 7×1 þml. á 8 00 64 00 23 ------- gólfborð 12 f. 6×5/4 þml á 8 25 189 75 9 tylftir gólfborð 13 f. 6×5/4 þml. á 8,89 80 01 3 ------ gólflista á 6,00, 3 tylftir hurða, og gluggalistar á 6,00 36 00 _Pappi og fleira._ 750 {~WHITE SQUARE~} álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 60 00 Naglar: 7 þús. 4 þml. á 2,30; 3 þús. 3 þml. á 1,20; 11 þús. 2 þml. á 0.65; 3 þús. 1-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1 þml. á 0,25; 5 þús. 2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 9 þús. af pappasaum á 0,25 35 20 56 rúður 15×16 þml. á 0,30 og 20 rúður 12×12 þml. á 0,25 21 80 12 pd. kítti á 0,18; 12 stofuskrár á 1,60; 3 klefaskrár á 0,65; 3 klinkur á 1,50 10 53 10 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 4 00 30 pd. zinkhvíta á 0,28 8 40 5 pd. svartur farfi á 0,35; 5 pd. rauður farfi á 0,35; 3 pd. blár farfi á 0,35 4 55 50 pt. fernisolía á 0,70 35 00 Reykháfur: 600 múrsteinar á 5 a. 30,50; kalk 15,00; vinnulaun 14,00 59 00 Þakjárn: 150 plötur 8 feta á 2,00 300 00 2 þakgluggar á 6,00 12 00 Þakjárnsnaglar 1600 á 70 a. hndr., og blýhringir á 4 kr. 15 20 3000 galvaníser. 1-½ þml. naglar á 1,75 5 25 Hurðarhjörur: 16 pör á 40 a., 2 pör (ytri) á 65 a., 2 gross skrúfur 80 a. 9 30 1 eldavjel með vatnskatli 35 00 3 hitavjelar á 15 kr. 45 00 10 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 6 80 12 áln. beinar reykpípur á 1,30 al. 15 60 6 reykhurð á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20 2 75 Smíðakaup 490 00 _______ 2532 49 Hita veitt frá dagl. stofu til kvennherbergis uppi. Sperrur, skammbitar og tvöföldu veggirnir úr 4×4 þml. viðum. Niðri allt málað, nema eldhús og búr, og ekki heldur haft þil neðan á bita í búri og eldhúsi. Svefnherbergi hjóna málað, hin ferníseruð. Tvöföld milliþil eptir því sem uppdrátturinn segir til, 1 þakgluggi yfir geymsluklefa og gangi. Á skúrnum 2 dyr, kjallari undir eldhúsi og búri eða allri stærð hússins. Gólfslár og bitar úr 5×5 þml. við. Hæð undir bita 4 ál. Í skrifstofunni er gjört ráð fyrir steinolíuofni. Rúður í aðalgluggunum 16×15. Vængjahurðir milli stofanna, Annað eptir því sem segir við húsið A. Plægt lopt á skammbitum 5/4 þml. þykktheflað og þiljað á þá að neðan. Vilji menn hafa skúra við hús F., ætti búrglugginn að færast á sömu hlið hússins sem eldhúsglugginn; skúr fyrir hinum stafninum og gangur þar í gegn til forstofu. Verða þá geymsluskúrar þvert fyrir báðum stöfnum hússins og framhlið snúið hvort heldur vill til austurs eða vesturs. Brotið þak má hafa, ef líkar, en þá missist það geymslupláss, sem ella fengist. Breyta má, ef vill, hjúahýbýlunum og hafa baðstofu þvert yfir alla breidd hússins, líkt og á húsinu E. * * * * * *Baðstofuhús nr. 1* 6×9 álnir. * * * * * 3 trje 18 feta 4×5 þml., 5 trje 20 feta 4×5 þml. á 10 a. 18 48 3 trje 18 feta 4×4 þml., 3 trje 12 feta 4×4 þml. á 10 a. 9 00 23 trje 7 feta 4×4 þml., 8 trje 8 feta 4×4 þml. á 10 a. 22 50 40 plankar 8 feta 2×4 þml., á 5 a. 16 00 6 ------ 14 feta 2×6 þml. á 9 a. 7 56 15 tylftir 12 feta borð 6×5/4 þml., plægð, óhefluð á 8,25 123 75 5-½ tylft 12 feta borð 6×5/4 þml. í gólf á 8,50 46 75 22 tylftir 12 feta borð 4 þml. í þiljur á 5,00 110 00 4-½ tylft 7 feta borð 6×5/4 þml., strikuð og plægð í milliþil á 5,50 24 75 3 tylftir 6 álna 7×5/4 þml. borð, óunnin, á 8,57 25 71 3 ------ 7 ---- 7×1 --- ---- á 8,57 25 71 482 {~WHITE SQUARE~} álnir pappa á 8 a. 38 56 72 þakjárnsplötur 8 feta á 2 kr., 3 plötur 8 feta sljett á 2 kr. 150 00 750 af þaksaum á 70 a., 4 þús. 4 þml. 2 30, 2 þús. 3 þml. 1,20, 1 þús. 2-½ þml. á 90 a., 7 þús. 2 þml. á 65 a., 1 þús. 1-½ þml. á 40 a., 1 þús. 1 þml. á 25 a., 1 þús. ½ þml. á 15 a., 6 þús. af pappasaum á 25 a. 24 60 10 pd. af zinki á 35 a., 6 pd. kítti á 18 a., 5 pd. blýhvíta á 28 a. 5 98 1 þús. galv. 1-½ þml. saumur á 1,75, 1 klinka á 1,50, 5 pt. af fernis á 70 a. 6 75 5 pör galv. gluggahjörur á 40 a., 3 stofuskrár á 2,25, 2 klefaskrár á 65 a. 10 05 6 pör hurðarhjörur á 40 a., 1 par ytri hjörur á 65 a., 1 gross skrúfur á 80 a. 3 85 Gler, eldavjel, reykpípur, hreinsunarhurð og 2 reykhurðir 44 60 Reykháfur, með vinnu 35 00 Smíðakaup 165 00 _________________ Samtals 914 59 Á þessu húsi ætti framstafninn að snúa í vestur. Kjallari undir allri baðstofunni, ef svo sýnist. Einn gluggi á suðurhlið. Aurslár og gólfslár 4×5 þml. Sillur, stafir og skástoðir 4×4 þml. Öll lausholt og sperrur 2×4 þml. Ekki má vera meira bil milli sperra en mátulegt fyrir eina torfubreidd. Eldavjelin sje vel þjett (frálaus), höfð í eldhúsi á sumrum, en baðstofu á vetrum, og lengja í reykpípunum. Troða heyi eða negla reiðing upp í millivegginn og þiljur beggja megin. Þök og útveggir skulu gerðir eptir þeim reglum, som gefnar eru við hús A. Sje skúr hafður til beggja hliða við baðstofu, verður lagið á húsi nr. 1 eins og á nr. 2. Með því fæst gott geymslurúm, bærinn verður traustari og að mun snotrari og kostnaðarminni að tiltölu. * * * * * *Baðstofuhús nr. 2.* 13×6-½ alin. * * * * * kr. a. 8 trje 32 feta, 4 trje 26 feta 4×5 þml. á, 12 a. 43 20 4 trje 26 feta, 4 trje 13 feta 4×4 þml. á 10 a. 15 60 32 trje 8 feta, 8 trje 9 feta 4×4 þml. á 10 a. 32 80 45 plankar 10 feta, 28 pl. 9 feta 2×4 þml. á 5 a. 35 10 9 ------ 14 feta 2×6 þml. á 9 a. 11 34 6 tylftir 14 feta borð á 9,92; 6 tylftir 12 feta gólfborð á 8,50 110 52 7 tylftir 14 feta borð á 9,63, 21 tylft 12 feta borð plægð, en óhefluð á 8,25 240 66 5 tylftir 8 feta borð í milliþil, strikuð og plægð, á 6,29 31 45 4 tylftir 12 feta borð 7×5/4 þml. óhefl., 4 tylftir 14 feta borð 7×1 þml. óhefl. 8,57 68 56 20 tylftir þiljuborð 12 feta 4 þml. 5,00, 52 tylftir 8 feta þiljuborð á 3,39 273 68 940 {~WHITE SQUARE~} al. af pappa á 8 a. 75 68 148 þakjárnsplötur á 2.00, 1600 naglar á 70 a. 307 20 6 þús. 4 þml. á 2,30, 2 þús, 3. þml. á 1,20, 3 þús. 2-½ þml. á 0,90, 9 þús. 2 þml. 0,65 a., 1 þús. 1-½ þml. á 0,40 a., 1 þús. 1 þml. á 0,25 a., 1 þús. ½ þml. á 0,15 a., 9 þús. af pappasaum á 0,25 a., 2 þús. af galvanís. 1-½ þml. nögl. á 1,75 31 30 10 pd. zinkhv. á 0,35 a., 6. pd. kítti á 0,18 a., 5 pd. blýhvítu á 0,28 5 98 1 klinka 1,50, 5 pt. fernisolía á 70 a. 5 00 7 pör galv. gluggahjörur á 40 a., 5 stofuskrár á 2,25 14 05 2 klefaskrár á 65 a., 6 pör hurðarhjörur á 40 a. 3 70 2 pör ytri hjörur á 65 a., 1 gross skrúfur á 80 a. 2 10 Gler, eldavjel, reykpípur, hreinsunarhurð og 2 reykhurðir 50 00 Reykháfur, með vinnu 40 00 Smíðakaup 250 00 ________________ Samtals: 1647 92 Á húsinu nr. 2 ætti framstafninn að snúa í suður. Sje annar endi baðstofunnar þiljaður af, kemur gluggi á þakið austanvert. Hita má fá í baðstofuna á vetrum, með því að eldavjelin sje flutt inn. Einnig getur reykháfurinn verið í sama stað í húsinu nr. 2 sem í nr. 1, og hitanum hagað þar eptir. Glugga a húsi og skemmu má hafa á hliðum hússins. Reykhlíf við reykháfinn beggja megin. Öll önnur gerð sem við hús nr. 1 Á húsi nr. 2 má ef vill setja port á baðstofuna og hækka þakið, láta bita yfir og gólf, til þess að hafa baðstofu uppi; þilja síðan þá baðstofu, sem er á uppdrættinum, í sundur, fyrir stofu, eldhús og búr, en hafa skúrana til geymslu, inngangs í húsið, fyrir svefnherbergi og fleira. * * * * * *Baðstofuhús nr. 3.* 10×25 áln. * * * * * Þetta hús er einungis fyrir stór-heimili og mun reynast mjög þægilegt, hver sem það notar. Kjallari undir skemmu eða þinghúsi, hvort heldur vill öllu eða nokkrum hluta þess, og beinn stigi úr eldhúsi og niður úr ganginum, sem sjá má á uppdrættinum. Skúr má hafa norðanvert við skemmu og búr, nema það sem gluggarnir ná til, en hafa má plankagirðing milli skúranna (með hurð) til hlífðar húsinu, ef vill. Um ytri gerð þessa baðstofuhúss gilda sömu reglur og húsið A. Þar sem uppdráttur af húsi nr. 3 verður notaður, er gjört ráð fyrir, að stór bær sje rofinn, og notað úr honum allt óskemmt efni, sem líkindi eru til að verði að mun, og smiðurinn gjöri grein fyrir því efni, sem vantar til húsgjörðarinnar. Þykir því engin brýn nauðsyn á sundurliðaðri áætlun. * * * * * *Nokkrar reglur fyrir húsagerð í sveit og víðar.* Grunnurinn sje sem þjettast og beinast hlaðinn og úr sem stærstu grjóti, vel bundinn og jafn-stór utanmáli grindarinnar; grafinn niður fyrir öll frost (4 fet), grunnstæðið lárjett og jafnfast í sjer (þar sem því verður við komið). Sje vatnsagi nálægt hússtæðinu, verður að veita vatninu burt með lokræsum nokkuð frá húsgrunninum; ella mundi það fljótt valda kulda og raka í húsinu og feyja það. Húsgrunnar sjeu minnst 18 þml. ofan jarðar. Þar sem enginn er kjallari undir íbúðarherbergjum, er gott að flóra neðan undir gólfslárnar, síðan hafa möl smækkandi upp eptir, 3 þml. lag af þurri ösku þar ofan á, og efst uppi undir gólfið álíka lag af vel þurru, en fornu heyi. Þá mun gólfið haldast þurrt og enginn gólfkuldi í herbergjunum. Þetta á við þar, sem jarðlagið er þurrt, en þurrkgrindur neðan undir aurslánum, þar sem raklent er, sem má opna á sumrum. Sje kjallari undir þeim herbergjum, sem búið er í, er mikils virði, að haft sje gott millilopt (Indskud) með 2-½ þml. þykku lagi af leir. Mun það varna raka og kulda frá kjallaranum upp gegn um gólfið. Sje kjallari hlaðinn á klöpp, en vatnsagi á klöppinni undan veggnum, virðist bezt, að renna sje höggvin i klöppina með öllum þeim vegg, og við næsta vegg ræsi, hvort heldur höggvið i klöpp, eða grafið niður fyrir og hlaðið, unz komið er að þeim stað, sem hallar mest frá eða jarðlagið er mýkst. Þekja svo yfir ræsið með þurrum hellum, svo smágrjót og möl yfir kjallarann, um 4 þml. á þykkt. 3 til 4 þml. lag af mulning og þá sement (¾ sandur) jafnað yfir með trjehnyðju, seinast lag af sement ({~VULGAR FRACTION TWO THIRDS~} sandur). Sje uppganga víða í gólfinu, þarf að grafa fyrir ræsum og veita vatninu út undir veggina, að þeim stað, sem mest hallar frá húsinu. Þekja svo yfir ræsin með hellum o.s.frv., eins og áður er getið. Þar sem á stöku stöðum í kjöllurum (og víðar, sem þarf að veita vatni frá) álízt að jörðin sje gljúp, sandur, möl o.fl., er lengra kemur niður, má grafa niður um 5 fet, setja þar niður 2 tunnur eða 2 kjagga hvorn upp af öðrum á endann, báða botnlausa, moka að og veita vatninu þar í og hlemm yfir. Svo langt niðri er mjög víða, sem jörðin er mjög gljúp og tekur á móti vatninu, en ekki má safnast rusl í botninn, sem hamlar vatninu að síga niður í jörðina. Verði ræsum ekki komið við út undir veggina, vegna þess að halli ekki er nægur, eða jörðin tekur ekki við vatninu gegnum kjaggana, verður að nota þessa kjagga sem vilpur og ausa þá, er þörf gerist. Vilji menn hafa kjallara rakalausa, svo sem til íbúðar eða geymslu á kornvöru, kaffi o.fl., þarf, eins og áður er getið, smágrjót, svo möl í gólfið, þá lag af steinsteypu. Þá er steypan er þurr, þarf að bera á gólfið og sömuleiðis veggina innan sjóðandi stálbik með pensli eða sófli. Enga kalkhúð á grásteininn undir stálbikið, en sópa þarf af honum allan sand og laust sement, áður stálbikið er borið á, og sömuleiðis af gólfinu, efst sements-húð á gólfið, en kalkhúð á veggi, eða leggja gólf úr plægðum borðum, með nægilega þjettum slám undir, og veggir þiljaðir innan; en varast verður að göt eða sprungur komi á stálbikið, því það er það, sem útilokar rakann. Stálbikið borið á með suðunni og sje vel þurrt undir. Það er ætlazt til, að þeir steinveggir, sem stálbikaðir eru, sjeu lagðir í sement eða allar holur fylltar með góðu sementi. Að hafa húsgrindur úr veigameiri trjám, virðist ekki áríðandi; en skástoðir þurfa mjög góðar, 2 gagnstæðar á hvern veg, bæði á hliðum og göflum (þar sem því verður við komið). Skástoðirnar halda húsinu í sínum skorðum fyrir allri verulegri áreynslu, en burðarkraptinn þarf að tiltölu minni. Aurslár 5×5 þml. eða 5×6 þml. og sömuleiðis gólfslár og bitar. Sjeu stafir og lausholt of rýr fyrir uppfyllinguna, skal negla borðrenning á rönd innan á veggina til að festa þiljurnar á (til að fá vegginn þykkri). Utan á grindina þarf 5/4 þml. borð, plægð, en óhefluð, pappi, svo og járnið. Innan pappi og þur þiljuborð innst. Utan á sperrur borð sams konar og í veggjum, og pappi undir járnið. Innan pappi og þiljur. Upp í grindina troðið fornu en óskemmdu og þurru heyi eða vel þurrum og moldarlausum reiðing. Sje reiðingur eða torf notað í stað heysins, þarf að negla það vel þjett út í trjeð hringinn í kring, hvort heldur í veggjum eða milli sperra. Uppfylling í útveggjum 6 þml. minnst og troðið svo fast sem unnt er. Þar sem lopt eru einföld, skal hefla og strika bita, áður reist er, og hafa lista við loptið, en uppfylling þar, sem þau eru tvöföld. Allt járn nr. 24 skarað um 2 bárur eða 1-½ minnst. Öll þversamskeyti á þökum 4 þml. minnst, og gott tjörukítti milli laga á öllum samskeytum. Járnið þjettneglt í allar dyra-og gluggakistur; engar dyra-eða gluggaumgerðir, en vatnsborð ofan og neðan við hvern glugga. Til að negla niður brúnirnar á fyrstu og síðustu plötunni á þakinu þarf galv. nagla. Áríðandi er að fyllt sje vel í bárurnar undir mænikjölinn með tjörukítti eða kalki og tjöru. Að hafa blýhringi undir þeim naglahausum, sem bárujárn er neglt með, er mjög gott, en varast verður að drepa götin of stór fyrir naglana; ella mun þakið leka. Sömuleiðis er áríðandi að naglar þeir, sem bárujárnið er neglt með, sjeu ekki lengri en svo, að þeir standi ekki inn úr trjenu; verður því, þar sem er of þunnt til þess, að tylla borðrenning innan á, þar sem naglaröðin kemur í járnið. Á gólf-og aurslár er mjög gott að bera koltjöru með nokkru af kreosótolíu saman við eða þá koltjöru og karbólineum. Eins og áætlanirnar bera með sjer, er hvorki flutningur (aðdrættir) á efni, nje uppfylling talið með í kostnaðinum, og ekki heldur grunnhleðsla nje strompar (úr höggnu íslenzku grjóti). Hið tiltekna verð á efniviðnum m.m. eptir áætlununum getur því að eins orðið svo lágt, sem þar segir, að menn geri samtök með sjer og kaupi sjálfir í stórkaupum; ella mun viðurinn verða minnst 15%--járnið 10%--dýrara og hitt annað nálægt 8% dýrara að jafnaði. Gert er ráð fyrir, að allur viður sje sænskur og góður í sjer. Strompar sjeu hafðir úr íslenzku grjóti, eða þá úr eldtraustum leir; þeir fást tilbúnir í heilu lagi á Skotlandi og víðar, og eru álíka dýrir og gerðir væru úr múrsteini. Áríðandi er, að vanda frágang á öllum lokræsum, að þau sjen traust og vel þjett. Jafnaðarlega eru notaðar til þess gleraðar leirpípur (drainrör, sewer, eða kloakrör); verð á þessum pípum fer eptir gildleika, sem á þeim er. Gildleiki á þeim, sem hingað flytjast, er 5--9 þml. (þvermál) og kosta frá 1 kr. 75 au. til 3 kr. 50 au. alinin. Það fást einnig öðru vísi gerðar pípur. Þær eru gerðar úr eldtraustum leir og ætlaðar til reykháfa í stað múrsteins. Bretar nota þær í smáhýsi, en þó optast að eins innan í reykháfana hjá sjer, í stað kalkhúðarinnar, sem viðgengst annarsstaðar; það kalla þeir chimney clay-pipes. Þessar pípur eru mátulega víðar og fullum þriðjungi ódýrari en reykháfar úr múrsteini, sjerstaklega vegna minni flutningskostnaðar; en brothættar eru þær og illt að gera við þær, ef bila. Frá þeim leggur mikinn hita út í herbergið sumar og vetur, og er það bæði kostur og ókostur; en aptur er hús með reykháfi úr múrsteini talið traustara og fullkomnara til vátryggingar. Grjóthleðsla í húsgrunnum og kjöllurum er tíðast hjer í Reykjavík seld 2,75--3 kr. {~WHITE SQUARE~} alinin í 12 þml. þykkan vegg; þar í fólgið sement og kalk, og að grafa fyrir grunni. Grjótið klofið og lagað til, áður hlaðið er. Veggir vel hlaðnir og bundnir og lagðir í sement, síðan jafnaðir að utan með sementi. Verð á sementi er nál. 11 kr. tunnan, og endist að jafnaði í 35 {~WHITE SQUARE~} álnir í 12 þml. þykkan vegg, auk kalks þess, sem blandað er saman við sementið, til þess að halda því nógu mjúku, meðan hver samhrærsla er unnin upp. Aðalskilyrði fyrir góðu viðhaldi á timburhúsum í sveit og víðar er, að þeim sje jafnan haldið vel þurrum. Raki er í alla staði skaðvænn og stendur þeim fyrir þrifum, sem við hann verða að búa. Orsök raka, bæði í mannahýbýlum og fjenaðarhúsum, er sú, að hiti og kuldi mætast. Sje veggurinn kaldur í gegn eða blautur, myndast vatnið innan á veggnum, en hitinn innan fyrir ónógur til að halda innra borði veggjarins nógu heitu og þurru gegn kuldanum úr veggnum, enda þarf til þess talsverðan hita í timburhúsum, en torfbæjum lítt auðið að halda svo heitum, að raki þorni að mun, eða honum geti orðið varnað. Hvort sem heldur er, að hiti og kuldi mætast innan á veggnum eða innan til í honum, kemur þar fram raki (væta), og feyir þann við á skömmum tíma, sem hann nær út yfir. Raki kemur og allopt af leka, einkum í bæjum. Til þess að varna raka í húsum, þarf ytra borð veggjarins að vera nógu þjett til að byrgja kuldann úti, og innra borðið nógu veigamikið til þess að innibyrgja hitann; bæði ytra borðið og innra þurfa að vera svo þjett, að þurrt og kyrrt lopt sje í miðjum veggnum. Eða þá eitthvert vel þurrt efni í miðjum veggnum, sem skilur á milli hita og kulda. Til þess má nota hey, torf, reiðing eða mosa, en hvað af þessu sem notað er, þá er aðalskilyrðið, að það sje vel þurrt, og heyi og mosa troðið fast. Þannig smíðuð timburhús verða bæði laus við raka og auk þess hlý. Eins og áður er á vikið, ríður mjög á því að húsum sje haldið vel þurrum, og það á hvaða tíma árs sem er. Sömuleiðis að engin óhreinindi safnist, sízt í afkyma og skúmaskot. Iðulega borin feiti á allar skrár og lamir, einkum utan húss. Farfi ekki látinn flagna af viði neinstaðar að utan, og þessa sízt kítti látið losna af rúðum; undir eins umbætt, ef eitthvað verður að. Hringir látnir milli hjara, ef hurðir síga. Aldrei skyldi bera sand á gólf, heldur hlífa því með strigaleppum, mottum eða ábreiðum. Engin naglahöfuð nái að ryðga utanhúss; þá ónýtist naglahöfuðið og missist þá það hald, sem naglanum er ætlað. Fyrir það gliðna svo borð og aðrir viðir í húsinu sundur og koma fram rifur; ágerist það því fljótar, sem vatn og vindur getur neytt sín meir; liggur þá húsið von bráðar undir skemmdum. --- Provided by LoyalBooks.com ---